Fjármál stjórnmálaflokka eftir hrun

Í dag fór fram umræða um fjármál stjórnmálafloka og kom í ljós að Alþingi ætlar með stuðningi allra þingmanna nema Hreyfingarinnar að festa enn frekar í sessi það fyrirkomulag sem var í fjármálum stjórnmálaflokka fyrir hrunið og sem skýrsla Rannsókanrnefndar Alþingis varaði sérstaklega við.

Það var einu orði sagt ömurlegt að fylgjast með viðhorfi Alþingismanna til grunvallar siðferðisspurninga og þeir féllu allir á prófinu. Það Alþingi (þ.e. þeir þingmenn) sem nú situr mun ekki takast á við þá endurreisn sem þarf hér á landi heldur eingöngu hugsa fyrst og fremst um sjálft sig.

Oj bara!

Hvað um það, hér eru tenglar á umræðuna sem var í meira lagi furðuleg. Hún skiptist í tvennt, fyrir hádegið og eftir hádegið.

Eins var ég með fyrirspurn til menntamálaráðherra í s.k. óundirbúnum fyrirspurnartíma í morgun um fjölmiðla og RÚV, sjá hér.


« Síðasta færsla

Athugasemdir

1 identicon

Mér þótti afar sérkennilegt að sjá hversu fáir þingmenn voru á þingfundi. Hver var skýringin?

Hrafn Arnarson (IP-tala skráð) 4.9.2010 kl. 08:43

2 Smámynd: Þór Saari

Þeir dauðskammast sín fyrir verk sitt en þurfa að styðja það samt. Þorðu ekki að láta sjá sig, hvað þá heldur tala, nema Margrét Tryggvadótttir, Róbert Marshall, Pétur Blöndal, Birgir Ármannson og Árni Þór Sigurðsson. Fyrir hádegishlé voru hins vegar engir nema Róbert Marshall, ég og Margrét í þingsalnum.

Þór Saari, 4.9.2010 kl. 12:39

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband